Forsíða Saga Núpsskóla Myndabanki Fréttir Héraðsskólarnir Hollvinir Núpsskóla Gamla skólahúsið Hafa samband
Núpsskóli í Dýrafirði var einn fyrstu alþýðu- og ungmennaskóla landsins. Slíkir skólar risu í framfarahug aldamóta tuttugustu aldar.
Rætur þeirra voru í hugsjónum danskra lýðháskóla sem lagaðir voru að íslenskum veruleika í mynd héraðsskóla þegar leið á öldina.
Saga Núpsskóla er í senn almenn skólasaga þjóðarinnar og saga afskekktra sveita á Vestfjörðum sem drógu með tímanum til sín hundruð íslenskra ungmenna í samfélag vinnu og gleði á eftirminnilegum morgni ævi sinnar.
Hollvinir Núpsskóla segja þessa sögu og lýsa bakgrunni hennar í myndum, nemendatali- og kennara , sögu bygginga, viðhorfum og hugsunarhætti frumkvöðla og skólastjóra frá Sr. Sigtryggi til Bjarna Pálssonar.
Þar segir frá stjórnunarháttum, félagslífi og samsetningu nemendahópsins frá Steini Steinarri, Kristjáni Davíðssyni, Jóni úr Vör allar götur til Birgittu Jónsdóttur og Jóns Gnarr.
Þetta er allmikil bók sem gömlum nemendum, starfsmönnum og velunnurum gefst tækifæri til að kaupa í forsölu og skrá nafn sitt á heillaóskaskrá 110 ára afmælis skólans sem fagnað er með þessari útgáfu bókarinnar á Núpi um Jónsmessubil sumarið 2017.
Verð í forsölu og til hátíðargesta er 9.000 kr. en til annarra 14.000 kr.
Ágóði af sölu bókarinnar, verði hann einhver, verður notaður til að ná fram markmiðum félagsins.
© 2016 Hollvinir Núpsskóla